Enski boltinn

Abramovich vill flytja Chelsea frá Brúnni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Roman Abramovich, eigandi Chelsea.
Roman Abramovich, eigandi Chelsea. Nordic Photos / Getty Images
Enskir fjölmiðlar fjalla mikið um áætlanir Roman Abramovic, eiganda Chelsea, um að flytja heimavöll félagsins frá Stamford Bridge og byggja nýjan leikvang fyrir félagið.

Abramovich hefur lengi velt fyrir sér möguleikum að koma fleiri áhorfendum fyrir á heimaleikjum Chelsea, annað hvort með því að byggja við Stamford Bridge eða byggja einfaldlega nýjan leikvang.

Chelsea hefur verið á Stamford Bridge í 106 ár en Abramovich virðist hafa komist að þeirri niðurstöðu að besti kosturinn sé að byggja nýjan leikvang sem gerir ráð fyrir 60 þúsund áhorfendum í sæti. Stamford Bridge tekur 41 þúsund áhorfendur en munurinn gæti skilað félaginu tekjuaukningu upp á 50 milljónir punda ár hvert.

Vandamál Abramovich er hins vegar að hann á ekki Stamford Bridge. Völlurinn sjálfur og stúkurnar eru í eigu eignarhaldsfélags sem þúsundir stuðningsmanna félagsins sameinuðust um að setja á laggirnar fyrir fjórtán árum síðan - einmitt til að sporna við því að hægt væri að selja félagið.

Hver hlutur kostaði stuðningsmennina 100 pund á sínum tíma en áhvílandi skuldir eru í dag 8,5 milljónir punda. Abramovich hefur boðist til að greiða niður skuldirnar og borga þar að auki 100 pund fyrir hvern hlut - um 1,5 milljón punda samtals. Stuðningsmennirnir myndu því ekkert græða á sölunni en atkvæði verða greidd um hana þann 27. október næstkomandi.

Nýi leikvangurinn yrði í næsta nágrenni við Stamford Bridge í Lundúnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×