Van der Vaart dregur dómgreind Redknapp í efa Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. október 2011 09:30 Rafael Van der Vaart í leik með Tottenham. Nordic Photos / Getty Images
Rafael van der Vaart gæti verið búinn að koma sér í vandræði hjá Harry Redknapp, stjóra Tottenham, fyrir ummæli sín í enskum fjölmiðlum nú í morgun. Van der Vaart sagði þá að hann vonaðist til að hann myndi ekki spila reglulega á hægri kantinum eins og hann gerði gegn Arsenal um helgina en hann telur þar að auki að það hafi verið óviðeigandi af Redknapp að ræða opinberlega um meiðsli hans. Van der Vaart vill eins og svo margir aðrir sóknarþenkjandi miðjumenn spila á miðjum vellinum en ekki úti á kanti. „Þetta hefur verið nokkuð pirrandi en auðvitað vill maður spila í þeirri stöðu sem hentar manni best," sagði Van der Vaart í viðtali við The Sun í dag. „En ef ég þarf að elta sóknarþenkjandi bakvörð upp og niður kantinn allan leikinn þá er nokkuð ljóst ég næ ekki mínu besta fram." „Þetta var ekki í fyrsta skiptið sem ég spilaði á hægri kantinum á sunnudaginn og fékk ég frelsi til að sækja meira inn á miðjuna. En það sást best á markinu sem ég skoraði að ég nýtist best á miðri miðjunni." Van der Vaart var tekinn af velli í leiknum þegar tæpar 30 mínútur voru til leiksloka en Redknapp hefur áður sagt að hann taki oft van der Vaart af velli vegna meiðslavandræða. „Það er mín skoðun að það voru mistök að tjá sig um meiðslin," sagði van der Vaart. „Hann tók mig af velli vegna þess að hann vildi ekki taka neina áhættu en ég tel að ég hefði getað spilað í 90 mínútur." „Það kom mér algerlega í opna skjöldu þegar ég var tekinn af velli. Mér fannst ég standa mig gríðarlega vel. Ég skoraði og gaf þrjár stungusendingar á liðsfélaga mína sem komust einir gegn markverði Arsenal." Hann segir þar að auki að það hafi verið rangt að hann hafi tekið boltann niður með höndinni áður en hann skoraði markið sitt í leiknum. „Nei, alls ekki. Þeir (Arsenal-menn) eru bara tapsárir. Ég tók boltann niður með bringunni."
Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Íslenski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Sjá meira