Capello ber enn traust til Rooney Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. október 2011 19:00 Nordic Photos / Getty Images
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, segist enn bera traust til Wayne Rooney sem fékk að líta rauða spjaldið í leik liðsins gegn Svartfjallalandi á föstudagskvöldið. Rooney verður í banni í fyrsta leik Englands á EM í Póllandi og Úkraínu næsta sumar. Hann gæti meira að segja misst af fyrstu tveimur leikjunum ef hann verður dæmdur í tveggja leikja bann af Knattspyrnusambandi Evrópu. Capello var spurður í gær hvort hann bæri enn traust til Rooney. „Já, það er ekki spurning. Af hverju ekki? Hann er virkilega góður leikmaður og afar mikilvægur okkar liði. Þegar hann er upp á sitt besta skiptir hann sköpum fyrir okkur.“ „Hann hefur verið besti maður enska landsliðsins í langan tíma og ég er viss um að hann verði okkur mikilvægur á EM í sumar.“ Dómarinn sem rak hann af velli, Þjóðverjinn Wolfgang Stark, telur að viðbrögð Rooney við rauða spjaldinu muni mögulega milda afstöðu forráðamanna UEFA í hans garð. „Hann gekkst við spjaldinu án þess að sýna mér neina vanvirðingu. Kannski mun það hjálpa honum í þessu máli,“ sagði Stark. „En þetta var beint rautt spjald og hikaði ég ekki við að kveða upp þann dóm. Rooney vissi upp á sig sökina og labbaði út af. En ég hef ekkert meira um málið að segja. Ég mun skila inn minni skýrslu og annað er undir UEFA komið.“ John Terry, fyrirliði enska landsliðsins, vill að enskir fjölmiðlar sýni Rooney miskunn. „Þetta er bara eitthvað sem gerðist. Við værum líklega ekki komnir inn á EM nema af því að Rooney er í okkar liði.“ „Það er miður að hann muni missa af einum eða tveimur leikjum á EM. Vonandi verður ekki ráðist á hann í fjölmiðlum því hann hefur verið frábær að undanförnu. Hann er afar mikilvægur leikmaður.“
Mest lesið Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni Íslenski boltinn Uppgjör: FH - KA 5-0 | FH pakkaði KA saman Íslenski boltinn Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Enski boltinn Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Enski boltinn Messi slær enn eitt metið Fótbolti Heimir: „Svo höfum við skitið í deigið“ Fótbolti Marcus Rashford neitar tilboði frá Sádí-Arabíu Sport Chelsea pakkaði PSG saman Fótbolti Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Fleiri fréttir Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Sjá meira