Enski boltinn

Capello: Ég vel leikmenn en ekki nöfn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, hefur varað miðjumanninn Frank Lampard við því að hann eigi á hættu að tapa sæti sínu í enska landsliðinu varanlega. Þó svo Lampard sé heill heilsu var hann settur á bekkinn á föstudag. Það hefur ekki gerst áður.

Lampard, sem leikið hefur 87 landsleiki, var settur á bekkinn þó svo Steven Gerrard og Jack Wilshere gætu ekki leikið vegna meiðsla. Scott Parker og Gareth Barry fengu byrjunarliðssæti.

"Lampard er einn af bestu miðjumönnum Englands en ég sem þjálfari verð að velja leikmenn en ekki nöfn. Við sjáum til hvort hann verði í liðinu á þriðjudag," sagði Capello en honum finnst Lampard ekki vera í nógu góðu formi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×