N-Kórea tilbúin að gera hlé á kjarnorkuáætlun 24. ágúst 2011 13:35 Medvedev (vinstri) og Kim Jong-il (hægri) áttu fund í dag. Mynd/AFP
Kim Jong-il gaf það út á fundi í dag með rússlandsforseta, Dimitry Medvedev, að Norður Kórea væri reiðubúin að gera hlé á framleiðslu kjarnavopna og tilraunum sínum með kjarnorku. Þessi tilkynning gæti greitt götu viðræðna milli sex þjóða sem sigldu í strand árið 2008. Frá árinu 2003 unnu Suður Kórea, Kína, Japan, Bandaríkin, Rússland og Norður Kórea að því að ná samkomulagi um eyðingu kjarnavopna sinna. Viðræðurnar enduðu snögglega árið 2008 og síðan hefur Norður Kórea gert miklar tilraunir með kjarnavopn og langdrægar eldflaugar. Í kjölfarið hefur landið einangrast mjög á heimssviðinu. Nú segist Kim Jong-il reiðubúinn að hætta tilraunum sínum, en í janúar á þessu ári gerðu Bandaríkin það að skilyrði fyrir því að hefja aftur sex þjóða viðræðurnar að Norður Kórea hætti kjarnorkutilraunum sínum. Þrátt fyrir yfirlýsingar Kim Jong-il efast sérfræðingar um að N-Kórea gefi nokkurn tíman upp kjarnavopn sín, enda veita þau landinu ákveðna vikt á alþjóðavettvangi. Landið þarf hins vegar sárlega á hjálp að halda eftir hungursneyð og flóð síðustu mánuði. Með yfirlýsingu sinni vonast Kim líklega til þess að önnur ríki verði viljugri við að rétta N-Kóreu hjálparhönd.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Fleiri fréttir Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Sjá meira