Enski boltinn

Leikmaður Newcastle handtekinn fyrir líkamsárás

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nile Ranger, leikmaður Newcastle.
Nile Ranger, leikmaður Newcastle. Nordic Photos / Getty Images
Nile Ranger, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Newcastle, hefur verið handtekinn þar sem hann er grunaður um líkamsárás.

33 ára gamall karlmaður fannst meðvitundarlaus í Newcastle í morgunsárið og var kjálkabrotinn.

Ranger, sem er tvítugur, var svo handtekinn en hefur félagið neitað að tjá sig nokkuð um málið.

Talsmaður lögreglu hefur staðfest að líkamsárásin átti sér stað og að tvítugur karlmaður hafi verið handtekinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×