Lögregluaðgerð í Kristjaníu endaði í ofbeldi og eldsvoða 18. ágúst 2011 07:15
Aðgerð Kaupmannahafnarlögreglunnar gegn hasssölum í Kristjaníu endaði í töluverðu ofbeldi og eldsvoða í gærkvöldi. Kaupmannahafnarlögreglan réðist inn í Kristjaníu um miðjan dag í gær til þess að stöðva hasssöluna sem þar er farin að blómstra að nýju. Heimsóknir sem þessar eiga sér stað á um þriggja mánaða fresti að jafnaði og fara yfirleitt fram eftir hefðbundnum línum. Hvorki Kristjáníubúar né lögreglan telja þær vera stórmál. En í gærkvöldi fór allt úr böndunum, að því er segir í frétt í Ekstra Bladet. Eftir að lögreglan ákvað að handtaka einn hasssalan ásamt 16 ára stúlku sem stóð við hlið hans varð fjandinn laus. Grjóti ringdi yfir lögreglumennina sem svörðu fyrir sig með táragassprengjum. Einnig var kveikt í ruslagámum við Prinsessegade sem Kristjanía stendur við þannig að töluvert bál varð af. Þegar hér var komið sögu dró lögreglan sig í hlé og beið átekta. Þá komu eldri Kristjaníubúar fram á götuna og fengu ungmennin sem kveikt höfðu í gámunum til að slökkva eldinn og slappa af.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira