Redknapp: Salan á Modric gæti styrkt Tottenham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. ágúst 2011 09:45 Luka Modric fagnar marki með Tottenham á undirbúningstímabilinu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Það er komið annað hljóð í Harry Redknapp, stjóra Tottenham, sem er nú tilbúinn að horfa á eftir Luka Modric til Chelsea eftir allt saman því hann segir að Tottenham gæti fengið þrjá til fjóra góða leikmenn í staðinn. „Við elskum allir klúbbinn okkar en ef einhver bíður þér að þrefalda launin þín og að vinna Meistaradeildina þá er valið ekki auðvelt," sagði Harry Redknapp um stöðuna sem Króatinn Luka Modric er nú í. „Það er búið að sannfæra hann. Ég vildi sjá hann hérna hjá okkur en ef hann fer þá gætum við fengið þrjá til fjóra leikmenn í staðinn," sagði Redknapp og bætti við: „Svona eru möguleikarnir hjá okkur núna: Að fá peninginn og ná í fjóra leikmenn sem í fullri hreinskilni myndi skila okkur betra liði eða að halda Luka sem er frábær leikmaður," sagði Redknapp. Tottenham mætir Hearts í kvöld í fyrri leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar en Luka Modric er meiddur og verður ekki með. Hann er ekki sá eini í liðinu sem glímir við meiðsli því liðið verður einnig án þeirra Tom Huddlestone, Jermaine Jenas, Sandro, Wilson Palacios, Steven Pienaar og William Gallas. Tottenham er annars í viðræðum um að fá Emmanuel Adebayor á láni frá Manchester City og þá hefur félagið einnig spurst fyrir um þá Lassana Diarra, Giuseppe Rossi, Fernando Llorente, Scott Parker og Bryan Ruiz en ekkert hefur komið út úr því til þessa.
Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Dagskráin í dag: Enginn Ronaldo í Danmörku Sport Fleiri fréttir Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Sjá meira