Emmanuel og Emmanuel á leið frá Arsenal Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. júlí 2011 17:30 Eboue brýtur á Lucas í viðbótartíma á Emirates á síðustu leiktíð. Nordic Photos/AFP
Emmanuel Eboue er á leið til tyrkneska knattspyrnuliðsins Galatasaray fyrir fjórar milljónir punda ef marka má breska fjölmiðla. Auk Eboue er nafni hans Emmanuel-Thomas orðaður við sölu til Ipswich. Eboue fór ekki með Arsenal í æfingaferðina til Asíu og voru meiðsli hans á kálfa sögð ástæðan. Fílbeinstrendingurinn var einnig skilinn eftir í síðustu viku þegar liðið hélt til Þýskalands og talið að tækifærið hafi verið nýtt og gengið frá samningum við Galatasaray. Eboue er vinsæll meðal leikmanna Arsenal og náði að koma sér í náðina á nýjan leik hjá stuðningsmönnum félagsins eftir heldur dapran tíma með liðinu. Klaufalegt brot hans í viðbótartíma gegn Liverpool á síðustu leiktíð virðist þó hafa haft mikil áhrif á álit Wenger á kappanum. Arsene Wenger virðist þurfa að losa sig við miðlungsleikmenn liðsins til þess að fjármagna kaup á nýjum leikmönnum. Gael Clichy var nýverið seldur til Manchester City og Brasilíumaðurinn Denilson lánaður til Sao Paulo í heimalandinu. Þá er Nicklas Bendtner orðaður við brottför frá félaginu líkt og markvörðurinn Manuel Almunia. Einnig er hinn tvítugi Emmanuel-Thomas orðaður við Ipswich fyrir eina milljón punda þannig að það safnast í kaupsjóð Wenger hjá Arsenal.
Mest lesið „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Enski boltinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Íslenski boltinn Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Heimir stýrir Írum gegn HM-liði Sport Fleiri fréttir Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport Sjá meira