Corinthians með 35 milljóna punda boð í Tevez Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. júlí 2011 13:00 Tevez var settur á bekkinn fyrir viðureign Argentínu og Kostaríka í Cope America Nordic Photos/AFP
Brasilíska knattspyrnufélagið Corinthians hefur boðið 35 milljónir punda eða sem svarar 6.6 milljörðum íslenskra króna í Carlos Tevez leikmann Man City. Kia Joorabchian ráðgjafi Tevez segist þegar hafa rætt við brasilíska félagið. Tevez hefur óskað eftir því að vera seldur frá bikarmeistaraliði Manchester City á Englandi en hann á þrjú ár eftir af samningi sínum. Aðeins lið í Suður-Ameríku koma til greina að því virðist þar sem leikmaðurinn vill komast nær fjölskyldu sinni sem býr á þeim slóðum. Tevez hefur verið orðaður við brotthvarf til Ítalíu og Spánar að undanförnu en Corinthians er fyrsta félagið sem gerir formlegt tilboð í kappann. Tevez er ekki ókunnugur félaginu en hann lék með þeim á árunum 2004-2006. Manchester City hefur sett 50 milljóna punda verðmiða á fyrirliða sinn og því alls ekki víst að félagið taki boðinu. „Viðræður eru hafnar," segir Joorabchian. „Corinthians hefur verið í sambandi við okkur. Draumur okkar er að Tevez geti snúið tilbaka til Corinthians. Hann segist eiga óklárað verk þar og segist eiga sér þann draum að vinna Copa Libertadores (Suður-Ameríkukeppni félagsliða)." Félagaskipti Tevez þurfa að ganga hratt fyrir sig ef af þeim á að verða. Félagaskiptaglugginn í Brasilíu lokar þann 20. júlí og yfirmaður knattspyrnumála hjá Corinthians, Duilio Monteiro Alves, segir að félagið muni gera hvað það geti. „Ég vil ekki gefa stuðningsmönnum okkar falskar vonir," sagði Alves. „Við munum reyna, það er allt sem ég get sagt. Þetta er ekki ómögulegt. Þetta er draumur sem við erum að reyna að láta verða að veruleika," sagði Alves.
Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Emil Barja tekur við Stjörnunni Körfubolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjá meira