Meiðslapési verður samherji Heiðars Helgusonar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. júlí 2011 13:00 Kieron Dyer spilaði aðeins 34 leiki á fjórum tímabilum hjá West Ham. Nordic Photos/AFP
Kantmaðurinn Kieron Dyer hefur skrifað undir eins árs samning við nýliða QPR í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Dyer þótti á sínum tíma einn efnilegasti knattspyrnumaður Englands. Erfið meiðsli hafa gert það að verkum að ferill hans hefur ekki náð þeim hæðum sem reiknað var með. „Ég þarf að sanna mig eftir tvö síðustu tímabil en mér líður vel og hlakka til að spila hlutverk í liðinu á næsta tímabili,“ sagði Dyer við heimasíðu QPR. Dyer hóf feril sinn hjá Ipswich Town og varð dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins þegar Newcastle keypti hann á sex milljónir punda árið 1999. Meiðsli settu strik í reikninginn árin hjá Newcastle. Hans tíma verður af mörgum minnst fyrir rauða spjaldið sem hann hlaut ásamt liðsfélaga sínum Lee Bowyer í leik gegn Aston Villa árið 2005. Samherjunum lenti saman og var báðum vikið af velli. Dyer hefur undanfarin ár verið á mála hjá West Ham en samningurinn við hann var ekki endurnýjaður að loknu síðasta tímabili. „Þetta er áhætta fyrir okkur en ég tel þess virði að taka hana. Hann hefur staðið sig frábærlega á æfingum og lítur út fyrir að hann hafi unnið hart að því í sumar að koma sér í form,“ sagði Neil Warnock knattspyrnustjóri QPR. Dyer hefur spilað 33 landsleiki fyrir England.
Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Emil Barja tekur við Stjörnunni Körfubolti Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjá meira