Kínverjar vígja risabrú: 42 kílómetrar að lengd 30. júní 2011 20:00 Brúin er engin smásmíði og ætli maður að skokka yfir hana jafnast það á við maraþonhlaup. MYND/AP
Kínverjar vígðu í dag lengstu sjávarbrú jarðar en hún er 42 kílómetrar að lengd. Brúin tengir hafnarborgina Qingdao í austurhluta landsins við Huangdao eyju. Samkvæmt ríkisútvarpi Kína kostaði brúin 1,5 milljarða bandaríkjadala en breska blaðið The Telegraph fullyrðir að kostnaðurinn hafi numið 8,8 milljörðum. Brúin, sem er studd af rúmlega fimm þúsund brúarstólpum var rúm fjögur ár í byggingu. Hún er samkvæmt Heimsmetabók Guinnes rúmum fjórum kílómetrum lengri en brú í Louisiana í Bandaríkjunum sem áður var lengsta brú yfir vatn í heiminum. Brúin er sögð mikið verkfræðilegt afrek og á hún að þola öflugustu jarðskjálfta og fellybylji. Þá er reiknað með að hún eigi að standast árekstur frá risaflutningaskipum sem eru allt að 300 þúsund tonn. Búist er við að um 30 þúsund bílar fari yfir brúna á hverjum degi en tíu þúsund verkamenn unnu á tvískiptum vöktum allan sólarhringinn við að byggja ferlíkið. 450 þúsund tonn af stáli fóru í bygginguna, en það samsvarar 64 Eiffel-turnum, og 80 milljónir ferfeta af steypu voru einnig notaðar. Brúin er þó langt frá því að vera lengsta brú veraldar, því Danyang-Kunshan brúin, einnig í Kína, er 164 kílómetrar að lengd. Hún er þó öll á landi.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira