Játaði morð eftir 65 ár Óli Tynes skrifar 10. júní 2011 13:57 Hún hringdi dyrabjöllunni og....
Níutíu og sex ára gömul hollensk kona hefur játað á sig morð sem hún framdi árið 1946. Það var fyrsta heila friðarárið eftir síðari heimsstyrjöldina og uppgjör við föðurlandssvikara og stríðsglæpamenn í fullum gangi. Atie Ridder-Visser var félagi í hollensku andspyrnuhreyfingunni. Felix Gulje var viðskiptajöfur sem meðal annars rak byggingafyrirtæki. Hann hafði tekið að sér verkefni fyrir Þjóðverja og var grunaður um samvinnu við þá. Það var á kaldri vetrarnóttunóttu hinn 1. mars sem Ridder-Visser hringdi dyrabjöllunni heima hjá Felix Gulje. Þegar eiginkona hans kom til dyra sagði Ridder-Visser að hún væri með bréf til hans. Þegar Gulje kom sjálfur til dyra skaut hún hann til bana. Það sem hún vissi ekki þá í ruglingslegu ástandinu eftir stríð var að Gulje hafði þegar verið sýknaður af ákæru um landráð og honum var ætlað pílitískt hlutverk í uppbyggingu Hollands eftir stíðið.Reyndist gyðingum vel Og ekki var nóg með að hann hefði ekki verið í samvinnu við Þjóðverja heldur hafði hann á laun liðsinnt ótalmörgum Gyðingum. Hann hafði bæði falið þá á sínu eigin heimili og greitt öðrum fyrir að veita þeim skjól. Lögreglan fann aldrei morðingjann. Ridder-Visser hefur nú loks játað á sig morðið og átt fund með barnabörnum Guljes til þess að útskýra hvað gerðist og hversvegna hún gerði það sem hún gerði. Ridder-Visser er nú bæði gömul og heilsuveil. Yfirvöld í Hollandi fordæma að hún skyldi taka lögin í eigin hendur, en hyggjast ekki lögsækja hana.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Buxnalaus Lalli olli glundroða Innlent Fleiri fréttir „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Sjá meira