Umfjöllun: Sanngjarn sigur Fylkis gegn Val Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. maí 2011 00:01 Mynd/Valli
Fylkismenn unnu 2-1 baráttusigur á Valsmönnum í Lautinni í Árbænum í kvöld. Þórir Hannesson og Albert Brynjar Ingason komu Fylki í 2-0 áður en bakvörðurinn Jónas Tór Næs minnkaði muninn með skallamarki í lok leiksins. Sigur Fylkis var sanngjarn þar sem þeir voru beittari í aðgerðum sínum og sköpuðu sér hættulegri færi. Valsarar voru hins vegar bitlausir fram á við og fundu ekki leiðina í markið fyrr en of seint. Fylkismenn eru með sigrinum komnir í hóp efstu liða deildarinnar með sjö stig en Valsmenn koma skammt undan með sex stig. Fylkisvöllur á enn töluvert í land með að verða tilbúinn fyrir yfirstandandi leiktíð. Leikmenn fundu fyrir því og erfiðlega gekk að halda boltanum innan liðsins. Fylkismenn voru grimmari og óhræddir við að láta vaða á markið. Valsmenn komu sér oft í ágætis stöður en náðu ekki að leggja boltann nógu vel fyrir sig og átti Fjalar Þorgeirsson markvörður Fylkis nokkuð náðugan dag. Eftir að hafa tapað unnum leik gegn Grindavík í fyrstu umferð hafa Fylkismenn náð í sjö stig úr síðustu þremur leikjum og líta vel út. Ástæða til bjartsýni í Árbænum. Ásgeir Börkur Ásgeirsson kom inn í liðið í stað Baldurs Bett sem er meiddur og átti fínan dag líkt og flestir í liðinu. Ásgeir hefur nú tekið út þriggja leikja bann sitt og kærkominn liðsstyrkur á miðjuna. Varnarlínan hélt virkilega vel í kvöld og gerðu sóknarmönnum Vals erfitt fyrir. Þá er Albert Brynjar Ingason kominn með þrjú mörk í fjórum leikjum. Albert er eldfljótur og skapaði oft hættu í leiknum með hraða sínum. Valsmenn hafa á hinn bóginn tapað tveimur leikjum í röð. Þeir söknuðu meiðslapésanna Arnars Sveins Geirssonar og Hauks Páls Sigurðssonar í leiknum í kvöld. Sigurbjörn Hreiðarsson og Jón Vilhelm Ákason sem komu inn í liðið í þeirra stað eru fínir knattspyrnumenn en náðu ekki að fylla í skarðið í þessum leik. Hörður Sveinsson var í góðri gæslu hjá varnarmönnum Fylkis í kvöld. Hörður á enn eftir að skora sitt fyrsta mark í sumar og vonandi fyrir Valsmenn að það komi fyrr en síðar. Nánar um leikinn í textalýsingu hér að neðan.Fylkismenn unnu 2-1 baráttusigur á Valsmönnum í Lautinni í Árbænum í kvöld. Sigur þeirra var sanngjarn þar sem þeir voru beittari í aðgerðum sínum og sköpuðu sér hættulegri færi. Valsarar voru hins vegar bitlausir fram á við og fundu ekki leiðina í markið fyrr en of seint. Fylkisvöllur á enn töluvert í land með að verða tilbúinn fyrir yfirstandandi leiktíð. Leikmenn fundu fyrir því og erfiðlega gekk að halda boltanum innan liðsins. Fylkismenn voru grimmari og óhræddir við að láta vaða á markið. Valsmenn komu sér oft í ágætis stöður en náðu ekki að leggja boltann nógu vel fyrir sig og átti Fjalar Þorgeirsson markvörður Fylkis nokkuð náðugan dag. Eftir að hafa tapað unnum leik gegn Grindavík í fyrstu umferð hafa Fylkismenn náð í sjö stig úr síðustu þremur leikjum og líta vel út. Ástæða til bjartsýni í Árbænum. Ásgeir Börkur Ásgeirsson kom inn í liðið í stað Baldurs Bett sem er meiddur og átti fínan dag líkt og flestir í liðinu. Ásgeir hefur nú tekið út þriggja leikja bann sitt og kærkominn liðsstyrkur á miðjuna. Varnarlínan hélt virkilega vel í kvöld og gerðu sóknarmönnum Vals erfitt fyrir. Þá er Albert Brynjar Ingason kominn með þrjú mörk í fjórum leikjum. Albert er eldfljótur og skapaði oft hættu í leiknum með hraða sínum. Valsmenn hafa á hinn bóginn tapað tveimur leikjum í röð. Þeir söknuðu meiðslapésanna Arnars Sveins Geirssonar og Hauks Páls Sigurðssonar í leiknum í kvöld. Sigurbjörn Hreiðarsson og Jón Vilhelm Ákason sem komu inn í liðið í þeirra stað eru fínir knattspyrnumenn en náðu ekki að fylla í skarðið í þessum leik. Hörður Sveinsson var í góðri gæslu hjá varnarmönnum Fylkis í kvöld. Hörður á enn eftir að skora sitt fyrsta mark í sumar og vonandi fyrir Valsmenn að það komi fyrr en síðar. Tölfræðin í leiknumFylkir-Valur 2-1 1-0 Þórir Hannesson (21.) 2-0 Albert Brynjar Ingason (69.) 2-1 Jón Tór Næs (90.) Áhorfendur: 1463 Dómari: Örvar Sær Gíslason 7. Skot (á mark): 11-10 (4-6) Varin skot: Fjalar 5 – Haraldur 2 Horn: 7-4 Aukaspyrnur fengnar: 15-8 Rangstöður: 3-5Fylkir (4-3-3) Fjalar Þorgeirsson 6 Þórir Hannesson 7 Kristján Valdimarsson 7 Valur Fannar Gíslason 7 Tómas Þorsteinsson 6 Ásgeir Börkur Ásgeirsson 6 Gylfi Einarsson 6 Andrés Már Jóhannesson 7 (88. Davíð Þór Ásbjörnsson) Ingimundur Níels Óskarsson 7 Jóhann Þórhallsson 6 (79. Andri Már Hermannsson) Albert Brynjar Ingason 7Valur (4-4-2) Haraldur Björnsson 6 Jónas Tór Næs 6 Atli Sveinn Þórarinsson 5 Halldór Kristinn Halldórsson 5 Pól Jóhannus Justinussen 5 (56. Andri Fannar Stefánsson 5) Matthías Guðmundsson 6 Sigurbjörn Örn Hreiðarsson 5 Guðjón Pétur Lýðsson 6 Jón Vilhelm Ákason 6 (73. Þórir Guðjónsson) Christian R. Mouritsen 5 (46. Rúnar Már S Sigurjónsson 5 ) Hörður Sveinsson 5
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Andrés Már: Búnir að læra af mistökunum "Þetta var frábært, við lögðum okkur alla fram og vorum yfir allan leikinn fannst mér. Þetta var verðskuldað. Góður sigur, kannski ekki fallegasti fótboltinn heldur vinnusigur," sagði kampakátur miðjumaður Fylkis Andrés Már Jóhannesson. 15. maí 2011 22:11 Jón Vilhelm: Sköpuðum okkur lítið sem ekki neitt "Við létum boltann ganga ágætlega á milli okkar en þegar við komumst á síðasta þriðjunginn gerðist voðalega lítið. Áttum stangarskot, eitthvað klafs í teignum en það var ekkert meira en það,“ sagði Jón Vilhelm Ákason vængmaður Vals að leik loknum. 15. maí 2011 22:04 Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Íslenski boltinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Fleiri fréttir Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Elías Már sárþjáður og fór af velli Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig Uppgjörið: ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Uppgjörið: ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: FH - Stjarnan 2-2 | Jafnt í Krikanum Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2 | Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjörið: Þór - KR 3-3 | Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu Sjá meira
Andrés Már: Búnir að læra af mistökunum "Þetta var frábært, við lögðum okkur alla fram og vorum yfir allan leikinn fannst mér. Þetta var verðskuldað. Góður sigur, kannski ekki fallegasti fótboltinn heldur vinnusigur," sagði kampakátur miðjumaður Fylkis Andrés Már Jóhannesson. 15. maí 2011 22:11
Jón Vilhelm: Sköpuðum okkur lítið sem ekki neitt "Við létum boltann ganga ágætlega á milli okkar en þegar við komumst á síðasta þriðjunginn gerðist voðalega lítið. Áttum stangarskot, eitthvað klafs í teignum en það var ekkert meira en það,“ sagði Jón Vilhelm Ákason vængmaður Vals að leik loknum. 15. maí 2011 22:04