Fær tólf milljónir í miskabætur eftir heldur furðulegan misskilning 21. nóvember 2011 21:02 Darwin-flugvöllur í Ástralíu
Það er ekki öll vitleysan eins líkt og ástralskur karlmaður hefur fengið að kynnast en hann hefur nú fengið um hundrað þúsund dollara, um tólf milljónir króna, í miskabætur frá áströlskum yfirvöldum eftir að hafa setið í fangelsi í þrjá daga í júní á síðasta ári. Maðurinn, Neil Parry, var að koma heim til sín í Ástralíu eftir ferðalag erlendis þegar hann var handtekinn á Darwin-flugvelli. Tollverðir töldu hann vera að smygla inn dópi í sjampó-brúsum. Þeir gerðu tvo sjampóbrúsa upptæka og einn brúsa af hárnæringu. Tollverðir töldu að í brúsunum væri ekki sjampó og hárnæring heldur einhvers konar dóp í fljótandi formi. Parry var hent í steininn og þar þurfti hann að dúsa í þrjá sólarhringa án þess að fá að ræða við lögfræðing eða segja sína skoðun á málinu. Tollurinn var hinsvegar alveg viss um að hann væri að reyna að smygla dópi inn í landið. Hún var því heldur vandræðaleg ferðin sem lögreglan fór í fangelsið sem Parry dvaldi í þremur dögum eftir að hann var tekinn. Þar tjáði lögreglan honum að tollverðirnir hefðu haft rangt fyrir sér. Eftir að niðurstöður úr efnagreiningu bárust kom í ljós að ekkert dóp var í brúsunum, heldur einungis sjampó og hárnæring. Nú hafa yfirvöld ákveðið að greiða Parry um tólf milljónir í miskabætur eftir að hafa setið í steininum í þrjá sólarhringa. Hvort hann fái sjampóið og hárnæringuna aftur fylgir ekki sögunni, en hann ætti að geta keypt sér nóg af sápu fyrir upphæðina.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Sjá meira