Harpan eins og risavaxið sjónvarp inn í hjólhýsi 28. ágúst 2011 10:38 Harpan á menningarnótt.
Breski greinahöfundurinn Rowan Moore er heillaður af glerlistaverki Ólafs Elíassonar í Hörpunni en Rowan skrifar nokkurskonar gagnrýni um Hörpuna í The Observer í dag. Í greininni spyr Rowan reyndar hvernig það geti verið að 300 þúsund manna þjóð þurfi á að halda tónleikahúsi af sömu stærðagráðu og Harpan. Kostnaðurinn hafi verið gríðarlegur, húsið státi fjórum sölum fyrir ráðstefnur og tónleika en sá stærsti rúmar átján hundruð manns. Til samanburðar bendir Rowan á að Ísland sé jafn fjölmennt og Ipswich. En hvað um það, höfundurinn er augljóslega hrifinn af hönnun Ólafs. Hann segir glerhjúpinn vissulega krystalkenndan, „og samkvæmt opinberu skýringunni, sækir hönnunin innblástur sinn í eldfjöll. Hjúpurinn glitrar. Hann er dálítið diskó," skrifar Rowan og bætir við að það sé nokkurskonar Brezhnev-sovéskur arkitektúr við hjúpinn - en með smá „blingi" eins og rowan orðar það sjálfur. Þrátt fyrir tilkomumikla byggingu segir Rowan að Harpa sé engu að síður á skjön við umhverfið. Það sé í raun eins og 64 tommu flatskjár inni í hjólhýsi. Rowan segir húsið eiga eftir að finna sinn tilgang, og að enginn sem hann ræddi við á Íslandi myndi endurtaka leikinn, það er, byggingu hússins, með sama hætti og gert var. Að lokum bætir hann við að það gæti komið að þeim tímapunkti að risastórt sjónvarp væri góð fjárfesting til þess að bæta skapið, og slíkt hið sama ætti við ótrúlegan glerhjúp Ólafs Elíassonar. Hægt er að lesa greinina í heild sinni hér.
Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Innlent Fleiri fréttir Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Sjá meira