Paul Scholes skilur hvað Carlos Tevez var að hugsa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. september 2011 10:15 Paul Scholes og Carlos Tevez. Mynd/Nordic Photos/Getty
Paul Scholes, fyrrum leikmaður Manchester United og fyrrum liðsfélagi Carlos Tevez, segist skilja það af hverju Carlos Tevez neitaði að fara inn á völlinn á móti Bayern Munchen á þriðjudaginn. Scholes neitaði á sínum tíma að spila fyrir Sir Alex Ferguson í deildarbikarleik árið 2001. „Ég þekki Carlos nokkuð vel. Hann er leikmaður sem vill spila og það fer mjög illa með hann að vera varamaður," sagði Paul Scholes í viðtalið við útvarp BBC. „Það stjórinn sem ræður þessu en Carlos var örugglega ekki að pæla í því. Hann var að hugsa um það að stjórinn væri á móti sér og af hverju hann væri ekki að skipta sér inn á. Hann var að hugsa: Ég er besti leikmaður City og hann er ekki að nota mig," sagði Paul Scholes. „Ég er samt ekki að segja að Tevez hafi haft rétt fyrir sér því það er að sjálfsögðu stjórinn sem ræður þessu," sagði Scholes. Scholes neitaði að spila fyrir Sir Alex Ferguson í deildarbikarleik á móti Arsenal í nóvember 2001 þegar Skotinn tefldi fram hálfgerðu varaliði en degi áður hafði Ferguson ekki notað Scholes í tapleik á móti Liverpool í ensku deildinni. „Ég taldi að ég hefði átt að spila daginn áður og hausinn minn var út um allt. Ég hélt að hann [Sir Alex Ferguson] væri að rugla í mér. Það var tóm vitleysa í mér og það er stjórinn sem ræður hvað hann gerir með sitt lið," rifjar Scholes upp. „Ég átta mig á því að ég var vitlaus og ég sá eftir þessu. Ég er samt viss um að Carlos Tevez hefur verið að hugsa svipað," sagði Scholes en hann baðst strax afsökunar og var síðan sektaður um vikulaun. „Stjórinn var í fullum rétti til að reka mig eða gera það sem hann vildi með mig. Hann gaf mér fulla sekt og þá var það mál búið. Ég held að ég hafi spilað næsta leik," sagði Scholes.
Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Fleiri fréttir Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Sjá meira