Dzeko búinn að biðja Mancini og liðsfélagana afsökunar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. september 2011 10:45 Edin Dzeko lét öllum illum látum á varamannabekknum. Mynd/Nordic Photos/Getty
Bosníumaðurinn Edin Dzeko hefur beðist afsökunar fyrir reiðikast sitt á varamannabekknum eftir að Roberto Mancini skipti honum útaf í tapleik Manchester City á móti Bayern Munchen í Meistaradeildinni á þriðjudaginn. Öll athyglin hefur verið á hegðun Carlos Tevez og mál Dzeko hefur því ekki verið mikill fjölmiðlamatur. „Ég veit að ég brást illa við og ég hef því talað við strákana og stjórann og beðist afsökunar," sagði Edin Dzeko í viðtali við heimasíðu Manchester City. „Roberto tók afsökunarbeiðni mína gilda og sagði að það væri allt í lagi á milli okkar. Hann sagði að ég þyrfti bara að mæta jákvæður í næsta leik," sagði Edin Dzeko en Manchester City mætir Blackburn Rovers á útivelli á morgun. „Ég var ósáttur því við vorum 2-0 undir því ég vildi vinna leikinn. Það var sérstakt fyrir mig að koma aftur til Þýskalands þar sem að ég spilaði svo lengi. Hlutirnir voru ekki að ganga upp hjá okkur og því var ég extra pirraður," útskýrði Dzeko. Edin Dzeko skoraði sjö mörk í fyrstu fjórum leikjum Manchester City á tímabilinu en hefur ekki skorað í fjórum leikjum síðan að hann setti fernuna á móti Tottenham á White Hart Lane 28. ágúst síðastliðinn.
Mest lesið Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Íslenski boltinn Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Fótbolti Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Enski boltinn Flagg fer til Dallas Körfubolti Neymar hlustaði á hjartað sitt Fótbolti Dagskráin: Stelpurnar hennar Betu í beinni og Norðurálsmótið Sport Fleiri fréttir Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Sjá meira