Wenger til stuðningsmanna Arsenal: Látið Adebayor í friði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. október 2011 12:30 Emmanuel Adebayor fagnar hér marki fyrir Arsenal á móti Tottenham. Mynd/Nordic Photos/Getty
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur biðlað til stuðningsmanna félagsins að bera virðingu fyrir Emmanuel Adebayor þegar Tógómaðurinn mætir Arsenal í fyrsta sinn sem leikmaður nágrannanna. Tottenham tekur á móti Arsenal á White Hart Lane klukkan 15.00 í dag. Emmanuel Adebayor lék í þrjú ár hjá Arsenal en komst í síðan í ónáð hjá stuðningsmönnum Arsenal þegar hann elti peningana til Manchester City. Hann gerði svo illt verra með því hlaupa völlinn endilangan til þess að geta fagnað marki á móti Arsenal fyrir framan stuðningsmenn félagsins. „Ég vil alls ekki að stuðningsmenn okkar einbeiti sér að Adebayor. Við viljum að fólkið styðji liðið á jákvæðan hátt. Fótboltaleikur er frábær skemmtun þegar allir reyna að njóta leiksins og búa til jákvætt andrúmsloft," sagði Arsene Wenger. „Ég vil fá alla stuðningsmenn okkar til að hvetja bara okkar lið og gleyma öllu öðru. Ef leikurinn er góður þá verður alltaf athygli allra á honum," sagði Wenger. Adebayor hefur skorað þrjú mörk í fyrstu þremur úrvalsdeildarleikjum sínum með Tottenham og þeir hafa allir unnist. Markatala Tottenham með Adebayor innanborðs er 8-1 en liðið tapaði tveimur fyrstu leikjunum án hans með markatölunni 1-8. „Þetta er mjög mikilvægur leikur en næsti leikur er líka alltaf sá mikilvægasti í þínu lífi. Liðið verður sterkara með hverjum sigri ekki síst þegar þú ert að koma út úr erfiðum kafla. Það er því mikilvægt fyrir okkur að vinna leiki og fá sjálfstraustið aftur," sagði Wenger. Arsenal fékk bara eitt stig út úr fyrstu þremur leikjum sínum en hefur nú unnið tvo af síðustu þremur leikjum og á möguleika á að fara upp í efri hlutann vinni liðið nágranna sína í Norður-London.
Mest lesið Missti typpið út úr buxunum en náði samt besta tíma ársins Sport Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika Íslenski boltinn Fóru yfir lætin í Kópavogi: „Höskuldur tryllist strax frá byrjun“ Íslenski boltinn Furðar sig á fjarveru Lárusar Orra: „Finnst þetta skrítið“ Íslenski boltinn Ná samkomulagi um kaup á Alberti Fótbolti John Andrews og Björn reknir Íslenski boltinn Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Staðfesta kaupin á Alberti Guðmunds Fótbolti Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Sjá meira