Mancini: Nasri ætti að vera löngu kominn Kolbeinn Tumi skrifar 13. ágúst 2011 11:45 Mancini ásamt Mubarak stjórnarformanni og Garry Cook framkvæmdastjóra. Nordic Photos/AFP
Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, er allt annað en sáttur við vinnubrögð stjórnar félagsins. Hann segir stjórnina annað árið í röð ekki standa sig þegar kemur að leikmannakaupum yfir sumartímann. „Á síðasta ári var vandamálið það sama. Ég skil þetta ekki. Ég taldi að við myndum fá leikmennina sem okkar vantar fyrir þremur eða fjórum vikum. Hér erum við og enn eru félagaskiptin ekki frágengin," sagði Mancini við breska fjölmiðla. Félagaskipti Samir Nasri frá Arsenal hafa legið í loftinu í töluverðan tíma. Kaupverðið er talið vera samþykkt en ósætti virðist ríkja með greiðsluformið. „Við þurfum á þessum leikmanni (Nasri) að halda. Ég óskaði eftir því að fá hann fyrir tveimur mánuðum. Ég hef áhyggjur vegna þess að hann er ekki kominn og kemur væntanlega ekki á morgun heldur. Við spilum þrjá leiki í ágúst og ég hef áhyggjur," sagði Mancini. Mancini neitaði að gefa upp hvort Vincent Kompany yrði fyrirliði City til langstíma í stað Carlos Tevez. Kompany hefur borið fyrirliðabandið á undirbúningstímabilinu í fjarveru Carlos Tevez. „Ég ákveð það, enginn annar. Ég hef tekið ákvörðun en ekki tilkynnt leikmönnum mínum. Þið munið sjá hver er fyrirliði næst þegar Carlos spilar. Það skiptir ekki máli núna. Það skiptir meira máli að ná í þá leikmenn sem okkur vantar," sagði Mancini. City mætir nýliðum Swansea á heimavelli á mánudagskvöld.
Mest lesið Segja Sölva hæðast að Bröndby Fótbolti Segir hetju Evrópumeistaranna ljúga Fótbolti Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Enski boltinn Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Fékk flugeld í punginn í leik Fótbolti Fékk rautt spjald fyrir að toga í hár mótherja Íslenski boltinn Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Enski boltinn Hafþór Júlíus í öðru sæti eftir fyrri daginn Sport Stórstjörnur Barcelona sektaðar fyrir brot á lyfjaprófsreglum Fótbolti Fleiri fréttir De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Meiðsli Rodri verri en menn héldu Manchester United staðfestir kaupin á Sesko Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Gjörbreytt framlína Man United með tilkomu Šeško Arsenal tapar fyrstu tveimur leikjum sínum með Gyökeres Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Sjá meira
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti