Pulis: Eiður enn of þungur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. nóvember 2010 10:45 Eiður Smári Guðjohnsen í leik með Stoke. Nordic Photos / Getty Images
Tony Pulis, stjóri Stoke, segir að Eiður Smári Guðjohnsen sé enn of þungur og að hann muni sennilega ekki fá sæti í byrjunarliði Stoke fyrr en í desember. Það er götublaðið The Sun sem hefur þetta eftir Pulis í dag. „Hann er enn aðeins of þungur. Vonandi ætti hann að vera kominn almennilega í gang í desember," sagði Pulis. „Hraðinn í ensku úrvalsdeildinni gerir það að verkum að menn verða að vera 100 prósent.“ Pulis sér þó ekki eftir því að hafa keypt Eið Smára. „Það er gott að hafa hann og hann hefur sýnt hvaða leikmann hann hefur að geyma. En hann er ekki enn kominn á það stig sem við viljum hafa hann á.“ Eiður á glæsilegan feril að baki þar sem hann hefur leikið með Bolton, Chelsea og Barcelona. Hann var síðast á mála hjá Monaco í Frakklandi þar sem hann náði sér ekki á strik. Hann var lánaður til Tottenham á síðari hluta tímabilsins í fyrra en félagið ákvað að fá hann ekki aftur til liðs við sig í sumar. Eiður hefur ekki enn fengið tæki í byrjunarliði Stoke síðan hann kom til félagsins en skorað eitt mark í leik með varaliði félagsins. Stoke hefur tapað fjórum leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni og datt þar með úr sjöunda sæti í það fimmtánda.
Mest lesið Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Handbolti HSÍ ósátt við EHF: Skikkaðir á viðburð morguninn eftir langa nótt Handbolti Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Leikmaður Dana fór á sjúkrahús eftir leikinn í kvöld Handbolti Alfreð enn kóngurinn en „jarðaður út og suður“ Handbolti Segir Dag hafa beðist afsökunar Handbolti Utan vallar: Af hverju töpuðu hetjurnar okkar gegn Dönum? Sport EM í dag: Pirruðu danska blaðamenn og truflun í boði skattgreiðenda Handbolti Pytlick: „Ísland átti meira skilið í kvöld“ Handbolti „Ég nenni ekki að eyða orku í þetta EHF lið“ Handbolti Fleiri fréttir Liverpool - Newcastle | Harður slagur á Anfield Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Sjá meira