Enski boltinn

Drogba á bekknum gegn Liverpool – Torres og Gerrard byrja

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Didier Drogba er á bekknum
Didier Drogba er á bekknum Getty Images

Liverpool og Chelsea mætast í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool hefur farið afleitlega af stað í ensku deildinni í vetur en hafa verið að leika betur á undanförnum vikum. Þeir höfðu betur gegn Napoli í Evrópudeildinni á fimmtudag þar sem Steven Gerrard skoraði þrennu.

Chelsea er á toppnum í deildinni en þeirra helsti markaskorari, Didier Drogba, á bekknum í dag. Hann glímir við flensu og er því settur á bekkinn. Florent Maluda verður þó með Chelsea en hann var tæpur fyrir leikinn vegna meiðsla. Hjá Liverpool eru Gerrard og Fernando Torres í byrjunarliðinu. Liðin má sjá hér að neðan.

Joe Cole nær ekki að mæta sínum gömlu félögum í Chelsea en hann á við meiðsli að stríða sem halda honum á hliðarlínunni.

Liverpool: Reina, Kelly, Carragher, Skrtel, Konchesky, Meireles, Lucas, Kuyt, Gerrard, Maxi, Torres.

Varamenn: Hansen, Jovanovic, Wilson, Ngog, Spearing, Poulsen, Shelvey.

Chelsea: Cech, Ivanovic, Terry, Alex, Cole, Ramires, Mikel, Zhirkov, Kalou, Anelka, Malouda.

Varamenn: Turnbull, Drogba, Bosingwa, Ferreira, Sturridge, Kakuta, McEachran.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×