Enski boltinn

Cech: Pressan er á Liverpool

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Petr Cech, markvörður Chelsea, segir að öll pressan sé á Liverpool fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.

„Ef þær ætla sér að blanda sér í toppbaráttu deildarinnar verða þeir að fara að vinna leiki og líka sterkustu liðin," sagði Cech en Chelsea er nú á toppi deildarinnar með 25 stig en Liverpool í því þrettánda með tólf.

Cech á von á erfiðum leik á Anfield. „Þeir fá nú fyrsta tækifærið til þess gegn okkur en við erum í efsta sæti deildarinnar og viljum vera í sömu stöðu eftir leikinn."

Það er reyndar lítil hætta á öðru þar sem Chelsea er með fimm stiga forystu á næsta lið í deildinni.

„Liverpool er með mjög góðan leikmannahóp sem hefur fulla getu til að berjast um efstu fjögur sæti deildarinnar."

„Þetta verður auðvitað erfitt fyrir liðið eftir þessa slæmu byrjun og þetta verður mikill eltingarleikur hjá þeim allt tímabilið."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×