Innlent

Spurði hvort mótmælendur hefðu gert eitthvað gagn í lífinu

Birgitta Jónsdóttir.
Birgitta Jónsdóttir.

Birgitta Jónsdóttir þingkona Hreyfingarinnar segir að sér hafi verið gróflega misboðið þegar forseti Slóvakíu gerði lítið úr mótmælendum sem tóku sér stöðu fyrir framan Alþingishúsið í dag. Amnesty á Íslandi boðaði til mótmælana til að vekja athygli á mannréttindabrotum sem sögð eru viðgangast í Slóvakíu gagnvart Roma fólki, eða sígaunum. Jón Gnarr borgarstjóri var á meðal þeirra sem mótmæltu í morgun.

Birgitta hitti forsetann, Ivan Gašparovi, á fundi með fleiri þingmönnum og þar minntist hann á mótmælendurna. „Hann spurði hvort þetta fólk hefði nokkurntímann gert eitthvað gagnlegt í sínu lífi," segir Birgitta. Að hennar sögn var hún við það að yfirgefa fundinn og taka sér stöðu með mótmælendunum.

„Ég benti honum í staðinn á að mótmælin væru að undirlagi Amnesty sem væru virt samtök á Íslandi með fjölda meðlima og að ég væri þar á meðal," segir Birgitta sem sagði forsetanum einnig að hún hefði margoft nýtt sér sinn lýðræðislega rétt til mótmæla, meðal annars fyrir utan Alþingishúsið. „Ég tilkynnti honum síðan að mér væri stórlega misboðið hvernig hann talaði um mótmælendur.

Að sög Birgittu var fátt um svör hjá Gašparovi, en hann mun þó hafa lýst því yfir að Amnesty væru samtök sem hefðu engan áhuga á samræðum eða á því að koma með lausnir í málum Roma fólks í Slóvakíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×