Laxness-skjölin í ráðuneyti Hillary Clinton 26. janúar 2010 04:30 Chay Lemoine. Fræðimaðurinn bandaríski hefur lengi barist fyrir því að skjöl stjórnvalda sinna um Halldór Laxness verði opinberuð. Hann hefur meðal annars beðið þáverandi þingmanninn Barack Obama um aðstoð.
Eftirstandandi leyniskjöl bandarískra stjórnvalda um Halldór Laxness eru nú komin í vörslu bandaríska utanríkisráðuneytisins. Þessi svör hefur Laxness-fræðimaðurinn Chay Lemoine eftir bandarísku alríkislögreglunni, FBI, en hann hefur um árabil reynt að kría út skjölin frá henni og CIA. Hann reyndi það nýverið hjá ráðuneyti Hillary Clinton utanríkisráðherra. „Þá hringdi afar kurteis kona úr ráðuneytinu í mig og vildi allt fyrir mig gera. En hún sagðist ekki geta sent mér skjölin,“ segir Lemoine. Hann hafi spurt konuna hverju þetta sætti og hún hafi að lokum gefið upp að verið væri að „vernda nafn“. Lemoine telur það benda til að upplýsingarnar séu viðkvæmar að þær eru geymdar í utanríkisráðuneytinu. Í blaðinu hefur komið fram að umrædd skjöl séu sögð ógna þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Lemoine telur að skjölin sýni afskipti Bandaríkjanna af innanríkismálum Íslands, og vera frá árunum 1946 til 1948. „Ég hef ekki fleiri úrræði og held að það eina sem hægt er að gera sé að íslensk stjórnvöld biðji sjálf um skjölin, fyrir sig. En ég veit ekki hvort þau vilja það. Það er sagt að þetta sé viðkvæmt fyrir Bandaríkin, en ég held að þetta sé miklu viðkvæmara fyrir Ísland. Vilja Íslendingar vita, og hefja umræðu um, hver hafi ef til vill verið landráðamaður og starfað með Bandaríkjunum gegn Íslendingum?“ spyr Lemoine. Árið 2008 bað íslenska utanríkisráðuneytið um að fjölskylda Laxness fengi að sjá skjöl tengd höfundinum. Þrettán lítilfjörleg skjöl bárust en ekki hin frægu leyniskjöl.- kóþ
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Sjá meira