Chicharito aftur hetja United - öll úrslit kvöldsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. október 2010 20:53 Bebe skoraði í kvöld. Hér er hann í baráttu við George Elokobi, sem einnig skoraði í leiknum. Nordic Photos / Getty Images
Javier „Chicharito" Hernandez var hetja Manchester United í kvöld er hann tryggði sínum mönnum sigurinn á lokamínútum leiksins gegn Wolves í ensku deildabikarkeppninni. Alls fóru fimm leikir fram í ensku deildabikarkeppninni í kvöld. Þetta er annar leikurinn í röð sem Hernandez tryggir United sigurinn á þennan máta en hann skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri liðsins á Stoke um helgina. Hann var nýkominn inn á sem varamaður í kvöld en Alex Ferguson tefldi fram óreyndu liði í kvöld. Ben Amos var í marki United í fyrsta sinn í tvö ár og Portúgalinn Bebe var í byrjunarliði United í fyrsta sinn. Hann þakkaði fyrir sig með því að koma United yfir í kvöld. Chris Smalling, Fabio, Darron Gibson, Gabriel Obertan og Federico Macheda voru einnig í byrjunarliði United í kvöld. Sem fyrr segir kom Bebe United yfir með marki snemma í síðari hálfleik eftir afar bragðdaufan fyrri hálfleik. Geroge Elokobi náði þó að jafna fyrir Wolves með skallamarki skömmu síðar áður en Ji-Sung Park náði aftur forystunni fyrir United með laglegu skoti í teignum. Það var útlit fyrir að leikurinn yrði framlengdur þar sem að Kevin Foyley náði að jafna leikinn fyrir Wolves á 76. mínútu. Fimm mínútum síðar kom Hernandez inn á sem varamaður og hann skoraði sigurmarkið á 90. mínútu eftir einkar laglega sendingu frá Gibson. Liverpool-banarnir í Northampton féllu úr leik í kvöld eftir 3-1 tap fyrir Ipswich á útivelli. Þá hélt West Brom uppteknum hætti með 4-1 sigri á Sven-Göran Eriksson og hans mönnum í Leicester. West Brom hefur komið liða mest á óvart í ensku úrvalsdeildinni og er í sjötta sæti sem stendur. Þá vann Wigan 2-0 sigur á Swansea. Roberto Martinez, núverandi stjóri Wigan, stýrði Swansea með góðum árangri þar til í fyrra er hann var keyptur til Wigan. Úrslit kvöldsins: Birmingham - Brentford 1-1 (framlengt) 0-1 Sam Wood (68.) 1-1 Kevin Phillips (90.) Birmingham vann í vítaspyrnukeppni, sjá hér.Ipswich - Northampton 3-1 0-1 Liam Davis (16.) 1-1 Carlos Edwards (26.) 2-1 Damien Delaney (44.) 3-1 Tamas Priskin (88.)Leicester - West Brom 1-4 0-1 Simon Cax (21.) 1-1 Paul Gallagher (53.) 1-2 Somen Tchoyi (62.) 1-3 Steven Reid (79.) 1-4 Simon Cox (90.) Manchester United - Wolves 3-2 1-0 Bebe (56.) 1-1 George Elokobi (60.) 2-1 Ji Sung Park (70.) 2-2 Kevin Foley (76.) 3-2 Javier Hernandez (90.) Wigan - Swansea 2-0 1-0 Mauro Boselli (51.) 2-0 Ben Watson, víti (90.)
Enski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport Uppgjörið: FH - Stjarnan | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira