Innlent

Ágúst Már: „Þetta er bara stórkostlegt og fallegt“

Valur Grettisson skrifar

„Þetta er bara stórkostlegt og fallegt," segir Ágúst Már Garðarsson, nefndarmaður Besta flokksins í velferðarnefnd Reykjavíkurborgar, en hann stóð á bak við kærleiks- og friðargönguna sem nokkur þúsund manns tóku þátt í.

Gangan var haldin vegna meintra ofsókna sem kúbverskir feðgar urðu fyrir en þeir flúðu land í kjölfarið. Þeir eru ekki enn komnir heim en samkvæmt fjölskyldu þeirra snúa feðgarnir aftur til Íslands í næstu viku.

Ágúst segist vera í sambandi við feðgana en eldri bróðir piltsins sem varð fyrir meintu ofsóknunum spilaði meðal annars á tónleikum sem eru enn í gangi á Ingólfstorgi.

Ágúst er himinlifandi yfir þátttökunni, „Það sýnir líka hversu spontant borgarkerfið er að geta brugðist við þessu máli," segir Ágúst áður en hann hélt áfram að hlýða á tónleikana.






Tengdar fréttir

Nokkur þúsund ganga gegn kynþáttafordómum

Nokkur þúsund manns eru í kærleiks- og friðargöngunni gegn kynþáttafordómum. Gengið verður frá Hallgrímskirkju niður á Ingólfstorg þar sem meðal annars verða haldnar ræður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×