Innlent

Kúbversku feðgarnir mæta ekki í kærleiksgönguna

Valur Grettisson skrifar
Heimili feðgana. Rúður voru brotnar og þeim hótað lífláti.
Heimili feðgana. Rúður voru brotnar og þeim hótað lífláti. Mynd / Valli

Feðgarnir sem flúðu land vegna meints kynþáttahaturs munu ekki mæta í kærleiksgönguna sem Besti flokkurinn stendur fyrir í dag.

Feðgarnir, sem eru kúbverskir, eru enn staddir erlendis en samkvæmt fjölskyldu þeirra þá er von á þeim til Íslands í næstu viku.

Fjölskylda og vinir feðgana munu þó fjölmenna í gönguna sem hefst klukkan tvö í dag. Gengið verður frá Hallgrímskirkju niður á Ingólfstorg þar sem tónleikar fara fram gegn kynþáttahatri.

Að sögn fjölskyldumeðlims sem Vísir ræddi við þá er gangan ómetanlegt framlag til málsins, þá ekki síst fyrir alla þá sem hafa nokkurn tímann orðið fyrir aðkasti vegna húðlitar eða uppruna síns.

Gangan er haldin vegna frétta af manni sem var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna meintra ofsókna gagnvart feðgunum. Hann segist hinsvegar saklaus af ásökununum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×