Enski boltinn

Grétar skoraði í sigri Bolton á Tottenham

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Younes Kaboul og Matt Taylor berjast um boltann í dag.
Younes Kaboul og Matt Taylor berjast um boltann í dag. Nordic Photos / Getty Images
Grétar Rafn Steinsson skoraði eitt marka Bolton í 4-2 sigri á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Grétar Rafn og félagar gerðu sér lítið fyrir og skelltu Tottenham á jörðina eftir frábæran 3-1 sigur síðarnefnda liðsins á Evrópumeisturum Inter fyrr í vikunni.

Tottenham var langt frá sínu besta lengst af í leiknum og hinn sjóðheiti Gareth Bale var haldið niðri af Grétari Rafni.

Kevin Davies kom Bolton yfir með marki á 31. mínútu eftir sendingu Fabrice Muamba sem stal boltanum af Brasilíumanninum Sandro.

Grétar Rafn skoraði svo annað markið snemma í síðari hálfleik með föstu skoti í teignum. Johan Elmander átti sendinguna á hann og tók Grétar eina snertingu áður en hann negldi knettinum í markhornið fjær.

Davies virtist svo hafa innsiglað sigurinn með marki úr vítaspyrnu á 76. mínútu eftir að Benoit Assou-Ekotto braut á Chung-Yong Lee.

En þá komu tvö mörk frá Tottenham undir lok leiksins. Fyrst náði Alan Hutton að minnka muninn fyrir Tottenham stuttu síðar með laglegu skoti og Roman Pavlyuchenko skoraði svo glæsilegt mark með þrumuskoti úr þröngu færi.

Tottenham reyndi að ná jöfnunarmarkinu en á 94. mínútu slapp Martin Petrov inn fyrir vörn liðsins og tryggði sínum mönnum endanlega sigurinn.

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur aldrei unnið á Reebok-vellinum og það breyttist ekki í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×