Erlent

Fékk sér göngutúr eftir læknisskoðun

Obama á röltinu ásamt lífvörðum.
Obama á röltinu ásamt lífvörðum.

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, tók fyrstu skrefin í að vinna bug á of háu kólestróli í gær, strax eftir að hann lauk læknisskoðun í Naval Medical Center í Bethesda. Obama gekk þá í gegnum Lafayette garðinn að Hvíta húsinu í staðinn fyrir að fara með bílalest eins og vaninn er.

Obama fór í læknisskoðun í gær þar sem kom í ljós að hann var við hestaheilsu, en kólesterólið er heldur hátt. Þar að auki líkar læknum ekki nikótínfíkn Obama en hann er ekki alveg hættur að reykja þrátt fyrir allnokkrar tilraunir. Til þess að sanngirnis sé gætt þá er hann nær alveg hættur að reykja og segist sjálfur ekki fíra upp í líkkistunaglanum fyrir framan fjölskylduna.

New York Post fór á stúfana í dag og kannaði hvers vegna forsetinn væri með svo hátt kólesteról. Í ljós kom að forsetinn er sérstakur aðdáandi ameríska ostborgarans sem hefur stöðvað ófá bandarísk hjörtu í gegnum tíðina. Þá fær hann sér alltaf desert eftir matinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×