Ríkisstjórn Hollands fallin Heimir Már Pétursson skrifar 20. febrúar 2010 09:56 Wouter Bos er leiðtogi Verkamannaflokksins. Mynd/ AFP.
Verkamannaflokkur Wouter Bos fjármálaráðherra Hollands gekk úr ríkisstjórn landsins eftir sextán klukkustunda maraþonfund ríkisstjórnarinnar sem lauk í nótt. Verkamannaflokkurinn gat ekki sætt sig við áframhaldandi þátttöku Hollendinga í hernaði vesturveldanna í suðurhluta Afganistans. Líf hollensku ríkisstjórnarinnar hefur hangið á bláþræði undanfarnar vikur en þriggja flokka samsteypustjórn Kristilegra demókrata, Verkamannaflokksins og Kristilega bandalagsins hefur setið við völd í þrjú ár. Við myndun stjórnarinnar var samþykkt að tólf hundruð manna herlið Hollendinga í Uruzghan í suðurhluta Afganistans yrði kallað heim fyrir 1. mars 2010. Atlantshafsbandalagið óskaði eftir því við hollsensk stjórnvöld að vera herliðsins yrði framlengd og vildi Jan Peter Belkenende forsætisráðherra og leiðtogi Kristilegra demókrata verða við þeirri ósk. Verkamannaflokkurinn með Wouter Bos fjármálaráðherra í broddi fylkingar vildi hins vegar ekki fallast á þetta og ákvað því í nótt að ganga úr ríkisstjórninni. Belkenende forsætisráðherra hefur ekki boðað til kosninga en hann mun eiga fund með Beatrix drottningu í dag til að segja af sér eins og lög Hollands gera ráð fyrir. Það flækir hins vegar stöðuna að drottningin er á skíðaferðalagi í Lech í Austurríki. Ekki er vitað hvort hún snýr heim vegna stjórnarkreppunnar, hvort forsætisráðherrann fer á fund drottingar í Austurríki eða lætur nægja að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt í gegnum síma. Samkvæmt hollenskum lögum skulu þingkosningar ekki fara fram fyrr en 83 dögum eftir afsögn ríkisstjórnar. Kristilegir demókratar eru stærsti flokkur Hollands með 41 þingmann en Verkamannaflokkurinn er næst stærstur með 33 þingmenn. Honum er spáð miklu fylgistapi verði yrði kosið nú.
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Vilhjálmur verður bæjarstjóri Innlent Fleiri fréttir Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Sjá meira