Enski boltinn

Áfrýjun Balotelli og Koscielny hafnað

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Balotelli fær hér að líta rauða spjaldið um helgina.
Balotelli fær hér að líta rauða spjaldið um helgina. Nordic Photos / Getty Images
Enska knattspyrnusambandið tilkynnti í dag að þeir Mario Balotelli og Laurent Koscielny munu taka út sín leikbönn eins og til stóð.

Báðir fengu að líta rautt spjald um helgina en Balotelli leikur með Manchester City og Koscielny með Arsenal.

Félögin áfrýjaði báðum spjöldunum en báðum áfrýjunum hefur nú verið hafnað.

Mario Balotelli mun taka út þriggja leikja bann fyrir spjaldið sem hann fékk gegn West Brom um helgina en honum var vikið af velli fyrir að sparka niður Youssuf Mulumbu, leikmann West Brom.

Koscielny fer í tveggja leikja bann þar sem rauða spjaldið sem hann fékk gegn Newcastle um helgina var hans önnur brottvísun á leiktíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×