Enski boltinn

Darren Bent missir af enn einu tækifærinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Darren Bent fagnar hér marki með Sunderland.
Darren Bent fagnar hér marki með Sunderland. Mynd/Nordic Photos/Getty
Darren Bent, framherji Sunderland, mun missa af vináttulandsleik Englendinga og Frakka sem fer fram í næstu viku en hann meiddist aftan í læri á æfingu á föstudaginn. Bent missti af leik Sunderland um síðustu helgi og verður frá í þrjár vikur vegna meiðslanna.

Darren Bent hefur skoraði 6 mörk í 10 leikjum með Sunderland í ensku úrvalsdeildinni auk þess að skora tvennu í enska deildarbikarnum. Hann var ekki með á móti Stoke um helgina þar sem Asamoah Gyan fyllti skarð hans og skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri Sunderland.

Bent missti einnig af síðasta landsliðsverkefni Englendinga eftir að hafa skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í 3-1 sigri á Sviss 7. september. Bent hefur oft verið viðloðinn enska landsliðinu en hefur helst vantað að fá alvöru tækifæri. Hann var sem dæmi skilinn eftir þegar HM-hópurinn var valinn í sumar.

Nú í öllum forföllum framherja enska landsliðsins hefur Bent ekki haft heppnina með sér því hann hefur ekki getað sýnt sig og sannað í liðinu þar sem hann hefur sjálfur ítekað glímt við meiðsli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×