Maðurinn sem uppgötvaði Bale ráðinn til Liverpool Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. nóvember 2010 17:45 Damien Comolli. Nordic Photos / AFP
Liverpool tilkynnti í dag að félagið hefði ráðið Damien Comolli til starfa - manninn sem fékk Gareth Bale til Tottenham árið 2007. Comolli var áður yfirmaður knattspyrnumála hjá Tottenham en hefur að undanförnu starfað hjá St. Etienne í Frakklandi. Hann fær nú það hlutverk hjá Liverpool að koma auga á unga og efnilega leikmenn, í samstarfi við Roy Hodgson knattspyrnustjóra. Þetta kemur fram á heimasíðu Liverpool í dag. John Henry, eigandi Liverpool, og Hodgson fagna báðir ráðningunni. „Ég hlakka til að starfa með Damien en ég hef þekkt hann í mörg ár. Við erum að fara af stað með spennandi verkefni hjá félaginu og hann hefur mikið fram að færa." Þá er einni rætt við Comolli sem rifjaði upp þegar hann sá Bale fyrst spila. „Þegar ég sá hann fyrst var ég algjörlega dolfallinn. Strax þá sýndi hann hvað í honum bjó. Hann var sterkur og bjó yfir mikilli tækni, sjálfstrausti til að fara í návígi við hvern sem er, hraða, frábærum vinstri fóti og vinnusemi. Hann var með allan pakkann." „Ég man að ég hugsaði með mér að ég hefði séð hinn nýja Paolo Maldini. Tottenham vill gera allt sem þeir geta til að halda Bale en ég veit að í sumar sýndu mörg stórlið honum áhuga." „Ef Tottenham ætlar sér stóra hluti í framtíðinni verða þeir að halda Bale og þátttaka þeirra í Meistaradeildinni ætti að hjálpa til í þeirri baráttu." Bale hefur slegið í gegn með Tottenham á leiktíðinni og var frábær þegar að liðið vann 3-1 sigur á Evrópumeisturum Inter á heimavelli í gær.
Mest lesið Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira