Innlent

Segir fleiri valdastéttir þurfa skýrt verklag vegna kynferðisbrota

Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta.
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta.

Talskona Stígamóta segir að þörf sé á að fleiri valdastéttir en prestar komi sér upp skýru verklagi þegar tilkynningar um kynferðisbrot berast. Hópur eldra fólks hefur undanfarið leitað til Stígamóta vegna kynferðisofbeldis sem það kveðst hafa orðið fyrir og þaggað hafi verið niður í skjóli embættisvalds.

Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag. Aðsóknin er svo mikil að þeir sem eru að koma í fyrsta skipti þurfa að bíða á þriðju viku áður en þeir komast að, sem er einstök staða að sögn Guðrúnar Jónsdóttur, talskona Stígamóta.

Guðrún segir tíma til kominn að fleiri stéttir samfélagsins marki sér skýra stefnu í þessum málum.

"Það er aldeilis kominn tími á að stofnanir geri það, við höfum til að mynda boðað landlækni til okkar í nóvember til að fara yfir þessi mál varðandi heilbrigðisstéttir en allar stéttir samfélagsins eiga að vera við því búnar að til þess geti leitað fólk vegna svona mála og það þarf að vera ljóst í hvaða ferli þessi mál fara í þegar þau koma upp."

Hún segir að umræðan í fjölmiðlum og samfélaginu um kynferðisbrot tengdum prestum hafi orðið til þessa. Gömul mál hafi gruggast upp.

"Það er erfiðara fyrir fólki en áður að fá ekki viðurkenningu á því að það hafi verið brotið á því," segir Guðrún og bætir við að viðbrögð kikjunnar að undanförnu hafi hrist upp í réttlætiskennd fólks.

"Ég held að fólki hafi þótt notalegt að einhver stofnun samfélagsins skylda taka fólk, sem sagði frá brotum gegn því, alvarlega. Ég tek svo fram að þetta er ekki bara kirkjan, þetta getur gerst í öllum samfélagsstofunum. Þegar embættivaldi er misbeitt þá verður fólk ansi lítið og dettur helst ekki í huga að leita réttar síns, en það er eins og umræða síðustu vikna hafi kveikt í fólki það eigi nú erfiðara með að bera leyndarmál sín í hljóði," segir hún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×