Hrunið á forsíðu dagblaðs í Sviss SB skrifar 18. september 2010 22:00 Blaðið greindi frá mótmælanda sem gat borgað skuldir sínar.
Nýtt dagblað í Sviss, Die Wochenzeitung, hóf göngu sína í vikunni með íslenska hrunið sem meginviðfangsefni blaðsins. Á forsíðunni er mynd af Reykjavík með fyrirsögninni: Ísland eftir hrun - afleiðingar bankaráns. Í opnugrein inn í blaðinu er rætt við nokkra Íslendinga um reynslu þeirra af kreppunni og áhrif efnahagshrunsins á líf þeirra. Búðareigandi segir sölu hafa aukist, slökkviliðsmaður segist hafa tapað milljón á því að kaupa sér nýjan bíl og mótmælandi er með flatskjá í hverju herbergi. Tapaði vinnunni Meðal þeirra sem rætt er við er Þórhallur Árni Ingason, hönnuður. Hann og eiginkona hans gátu ekki eignast börn og Þórhalllur segir þau því hafa ákveðið að ættleiða barn frá Indlandi árið 2002. Þau hafi rekið lítið fyrirtæki sem þau hafi svo selt og hann hafi fengið sér vinnu sem gaf um hálfa milljón á mánuði út í aðra hönd. Allt hafi gengið vel og þau hjónin hafi ákveðið að ættleiða annað barn og árið 2008 hafi þau sótt barnið til Indlands. Með tvö börn á heimilinu og vegna kostnaðarins við ættleiðinguna hafi þau hins vegar vantað fjármagn til endurgerða á heimilinu og því leitað til bankans. Í viðtalinu segir Þórhallur efnahagshrunið hafa kostað hann vinnuna. Í dag þéni hann einungis 140 þúsund krónur á mánuði í atvinnuleysisbætur. Þau hjónin geti ekki lengur borgað vextina á kreditkortinu. Fram að haustinu 2008 hafi allt gengið að óskum en nú sé allt svart. Hann biðji ekki um að skuldirnar hverfi, aðeins að lausn verði fundin svo hann geti að minnsta kosti haldið húsinu. Slökkviliðsmaður með bílalán Sveinbjörn Berentsson slökkviliðsmaður er einnig viðmælandi svissneska vikublaðsins. Hann lýsir verkfallsaðgerðum slökkviliðsmanna og segir aðgerðina, þegar slökkviliðsmenn gengu fylktu liði að ráðhúsinu og héldu námskeið í brunavörnum, hafa gengið vel. „Það voru mjög jákvæðar myndir sem birtust af okkur í sjónvarpinu," segir hann. Fréttir af launakröfum slökkviliðsmanna voru oft óljósar og menn tregir að tjá sig um nákvæmar tölur. Í viðtalinu segir Sveinbjörn hins vegar að kjaranefnd hafi boðið slökkviliðsmönnum 0,8 prósent launahækkun en þeir hafi farið fram á 3% hækkun. Byrjandi hjá slökkviliðinu hafi aðeins 169 þúsund krónur í launs og sú upphæð dugi ekki til að draga fram lífsbjargirnar. Sjálfur lenti Sveinbjörn í vandræðum þegar hann tók milljón króna lán fyrir nýjum bíl. Eftir hrunið hafði lánið tvöfaldast og hann hafi tapað miklu fé. Mótmælandi með flatskjá í hverju herbergi Í grein svissneska blaðsins er leitast við að skoða sem flestar hliðar kreppunar. Búðareigandinn Bryndís Eiríksdóttir lýsir því hvernig ásókn í prjónaskap hafi aukist líkt og salan í búðinni. Með falli krónunnar færist líf í ferðamannaiðnaðinn og túristarnir séu sólgnir í íslenskar vörur. Þá er einnig rætt við Kristínu Snæfell Arnþórsdóttur mótmælanda. Kristín hefur staðið fremst í fylkingu þeirra sem mótmælt hafa við stjórnarráðsbygginguna og skrifstofu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Það gustar af henni og óvanalegt útlit hennar vekur athygli bæði Íslendinga og erlendra ferðamanna. Blaðamaður lýsir því að Kristín gangi oft að ferðamönnum og þýði slagorðin sem hljóma þegar ráðherrar mæta prúðbúnir til fundar. „Maður þekkir Kristínu á því að rödd hennar hljómar gegnum gjallarhorn sem hún ber á sér, hún lýsir því yfir að Ísland hafi verið arðrænt og krefst nýrrar ríkisstjórnar," skrifar blaðamaðurinn. Hann hefur jafnframt eftir Kristínu að á Íslandi búi aðeins 300 þúsund manns en hvarvetna séu tómar byggingar. Enginn veit af hverju svo mikið hafi verið byggt en hún hafi sínar kenningar. „Ég er viss um að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hugsi um hvernig hægt er að nota allt þetta byggingarrými. Kannski vilja þeir byrja að flytja fólk til Íslands. En það líst mér illa á. Við eigum að hugsa um okkur sjálf, við verðum að læra aftur hvernig maður lifir einföldu lífi!" Í lok viðtalsins við Kristínu tekur blaðamaðurinn fram að fyrir nokkrum árum hafi hún fest kaup á þriggja herbergja íbúð þar sem flatskjár prýðir hvert herbergi. Fyrir utan hús hennar standi forláta grill og nýr bíll. Hún borgi yfir 200 þúsund krónur í vexti á mánuði af skuldum sínum, en reki eigið fyrirtæki sem safni peningum fyrir góðargerðarsamtök. Hún geti því borgað. Hægt er að lesa greinina hér.
Mest lesið Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Innlent „Þá kemur bara allt í einu högg“ Innlent Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Veður Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Innlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Erlent Fleiri fréttir Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Sjá meira