Enski boltinn

Mancini ætlar ekki að hætta hjá City

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Roberto Mancini, stjóri Manchester City.
Roberto Mancini, stjóri Manchester City. Nordic Photos / AFP

Roberto Mancini segir að það komi ekki til greina hjá honum að hætta sjálfviljugur hjá Manchester City - félagið verði að reka hann vilji það hann burt.

City tapaði í gær fyrir pólska liðinu Lech Poznan á útivelli í Evrópudeild UEFA í gær, 3-1. Þetta var þriðja tap liðsins í röð en þar áður tapaði City fyrir Arsenal og Wolves í ensku úrvalsdeildinni.

Þar að auki hafa enskir fjölmiðlar verið duglegir að segja frá fréttum um óróa innan leikmannahóps City.

„Hvað mig varðar er þetta alveg kýrskýrt - ég verð hjá City þar til ég verð rekinn," sagði Mancini við franska fjölmiðla.

„Ég hef hitt eiganda félagsins, sjeik Mansour, í tvö eða þrjú skipti og samband okkar er gott. Ég hef líka átt í tíðum samskiptum við forseta félagsins, Khaldoon Al Mubarak."

„Við tölum saman þrisvar eða fjórum sinnum í viku og hann kemur oft á æfingar."

Talið er að Mancini hafi verið falið það hlutverk að tryggja City þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu fyrir næstu leiktíð en fjögur efstu liðin í ensku úrvalsdeildinni komast þangað. City er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×