Enski boltinn

Drogba: Feginn að nóvember er liðinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Didier Drogba, framherji Chelsea, segir að liðið geti ekki falið sig á bak við meiðsli til þess að útskýra lélegt gengi síðustu vikur.

Chelsea hefur verið án Frank Lampard, John Terry og Michael Essien í síðustu leikjum og það hefur augljóslega haft sín áhrif.

"Þetta gengi er líklega það lélegasta síðan ég kom til félagsins. Það er alls ekki nógu gott. Þetta fer virkilega í taugarnar á mér. Vissulega veit maður að slæm tímabil geta komið og maður verður að gera allt sem maður getur til að breyta því," sagði Drogba.

"Við erum að spila gegn liðunum sem eru í kringum okkur næstu vikur og það er mikil áskorun sem við verðum að vinna. Við erum fegnir að nóvember er búinn og nú sjáum við hvað desember færir okkur. Við getum samt ekki falið okkur á bak við meiðsli leikmanna."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×