Erlent

Einn þjófur skotinn - 160 handteknir

Hrikaleg eyðilegging.
Hrikaleg eyðilegging.

Síleski herinn skaut einn karlmann sem lést af sárum sínum og hefur handtekið 160 þjófa í borginni Concepcion sem varð verst úti í jarðskjálftanum á laugardaginn sem mældist 8.8 á richter.

Þjófagengi hafa farið rænandi og ruplandi um svæðið en tíu þúsund hermenn hafa verið sendir á vettvang til þess að hafa hemil á ástandinu.

Fjórir starfsmenn íslensku landhelgisgæslunnar, sem eru staddir í borginni, eru meðal annars vopnaðir skotvopnum til þess að verjast þjófagengjunum.

Lítil farþegavél með vistir handa bágstöddum hrapaði síðdegis á leiðinni til borgarinnar. Sex létust samkvæmt fréttavef BBC. Vélin hrapaði nærri smábænum Tome sem er nálægt Concepcion.

Yfirvöld í Chíle hafa óskað eftir aðstoð Sameinuðu Þjóðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×