Enski boltinn

Meiðsli og veikindi herja á Manchester United

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nani verður líklega ekki með á morgun.
Nani verður líklega ekki með á morgun. Nordic Photos / Getty Images

Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að veikindi og meiðsli hafi gert undirbúning liðsins fyrir leikinn gegn Manchester City á morgun afar erfiðan.

„Ryan [Giggs] verður ekki með," sagði Ferguson á blaðamannafundi í dag. „Nani er tæpur og það lítur ekki út fyrir að hann geti verið með."

Þá hafa veikindi einnig set strik í reikninginn en flensa virðist vera að ganga í leikmannahópnum. „Við erum að taka manntal eins og er."

Owen Hargreaves er vitanlega meiddur en hann verður frá í fimm vikur vegna meiðslanna sem hann hlaut í leik United gegn Wolves um helgina. Það var hans fyrsti leikur í byrjunarliði í rúm tvö ár en hann entist í aðeins fimm mínútur inn á vellinum.

Ferguson segir að grannaslagir séu ávallt skemmtilegir, sama hvernig staðan er í deildinni.

„Það jafnast ekkert á við að vinna grannaslagi. Það skiptir ekki á hvaða tíma það er," sagði Ferguson.

United vann báða leiki liðanna í deildinni á síðasta tímabili með marki í uppbótartíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×