Enski boltinn

Leikir United og City geta haft áhrif á hjónabönd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það er allt á suðupunkti í Manchester í dag fyrir leik United og City í kvöld. Líkt og oftast er Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, duglegur að tendra bálið fyrir nágrannaslaginn. Eyðsla eigenda City hefur farið í taugarnar á Ferguson sem hefur kallað City hávaðasama nágranna. Það fór einnig verulega í taugarnar á honum á sínum tíma er félagið bauð upp á skiltið "Velkominn til Manchester" er Tevez færði sig um set í borginni. "Ég veit ekki hver var ábyrgur fyrir þessu. Þetta var líklega auglýsingabrella hjá félaginu en ég tel að félagið geti ekki verið stolt af þessu. Ég sagði að skiltið væri heimskulegt þá og félagið er líklega búið að átta sig á því núna," sagði Ferguson. "Kannski var þetta þess virði fyrir einhverja stuðningsmenn félagsins en flestir þeirra skammast sín líklega. Þeir vilja líklega sjá einhverja bikara áður en menn fara að monta sig," sagði Ferguson sem bíður þó spenntur eftir leiknum. "Nágrannaslagir eru frábærir. Hvort mynduð þið frekar vilja stýra leik á milli United og City eða Carlisle gegn Crewe? Þetta eru sérstakir leikir sem geta haft áhrif á hjónabönd. Þetta er leikur fullur af tilfinningum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×