Enski boltinn

Hernandez ætlar að hefna sín á Tevez í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Leikurinn Man. Utd og Man. City í kvöld hefur mikla þýðingu fyrir Javier Hernandez, leikmann Man. Utd. Hernandez segist ekki enn hafa jafnað sig á tapi Mexíkó gegn Argentínu á HM og hann vill því hafa betur gegn Carlos Tevez í kvöld.

Hernandez skoraði mark Mexíkó gegn Argentínu á HM en Argentína vann leikinn, 3-1. Tevez skoraði tvö mörk fyrir Argentínu og fyrra markið var umdeilt enda klár rangstæða.

"Það eru óúkljáð mál hjá mér og Tevez. Hann vann okkur á umdeildan hátt á HM og nú er komið að mér að svara," sagði Hernandez ákveðinn.

"Við vitum að við verðum að stoppa Tevez. Þó svo hann hafi verið meiddur er hann alltaf líklegur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×