Tryggvi: Verð seint valinn vinsælasti keppandinn í deildinni Hjalti Þór Hreinsson skrifar 10. júlí 2010 10:15 Fréttablaðið/Anton
Tryggvi Guðmundson ætlaði að fljúga með Keflavíkurliðinu í land eftir 2-1 sigur ÍBV á fimmtudaginn. Hann hætti þó snarlega við þar sem Keflvíkingar voru brjálaðir út í Tryggva. Ástæðan er sú að hann var viðriðinn atvik sem lauk með því að Guðjón Árni Antoníusson fékk rautt spjald áður en ÍBV tryggði sér sigur. „Ég er skiljanlega ekki sáttur. Það var greinilegt að við áttum innkastið en Tryggvi tók boltann upp. Ég var pollrólegur og ætlaði að taka boltann af honum til að taka innkastið hratt en þá dettur hann. Ef dómarinn átti að spjalda einhvern átti hann að spjalda Tryggva, hann veit það sjálfur að þetta var leikaraskapur,“ sagði Guðjón sem fékk sitt seinna gula spjald fyrir að ýta við Tryggva. „Það er tvísýnt hver átti innkastið,“ segir Tryggvi. „Bæði lið vilja tryggja sér sigur og ég náði því í boltann til að taka innkastið hratt. Við lendum saman og áður en ég veit af er dómarinn kominn með gula spjaldið. Ég var ekki að reyna að fiska spjald eða láta mig detta. Við rákumst bara saman og ég stóð strax upp. Hann gerði mér ekkert,“ sagði Tryggvi. „Ég hélt að dómarinn myndi sjá í gegnum þetta,“ segir Guðjón. „Gunnar Jarl dómari hafði dæmt vel og beðið menn um að standa í lappirnar. Það var dapurlegt að dómarinn skyldi falla fyrir einmitt þessu, ég átti alls ekki skilið gult spjald,“ sagði Guðjón. „Ég er ekki það fljótur að hugsa að ég ætli að ná í bolta til að láta hugsanlega einhvern brjóta á mér sem er kannski með gult spjald og getur fengið rautt. Ég er fljótur að hugsa en ekki svona fljótur,“ segir Tryggvi en þetta er ekki í fyrsta skipti í sumar sem andstæðingar Tryggva eru ósáttir. „Ég verð seint valinn vinsælasti keppandinn í deildinni, það eru tveir búnir að fjúka út af í kringum mig í sumar til dæmis. Ég ætlaði að fljúga með Keflavíkurliðinu heim en hætti við vegna þess hve brjálaðir þeir voru. Ég reyndi líka að tala við Willum þjálfara þeirra til að skýra mína hlið en það var vonlaust.”
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Enski boltinn Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Enski boltinn Fleiri fréttir Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Sjá meira