Innlent

Írani frá 1360 dæmdur í fangelsi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Héraðsdómur Reykjaness.
Héraðsdómur Reykjaness.
Íranskur karlmaður, sem fæddur er árið 1360 samkvæmt írönsku tímatali, var dæmdur í 30 daga fangelsi í dag fyrir að framvísa fölsuðu vegabréfi við komuna til Íslands frá Noregi á mánudag fyrir viku.

Ákærði játaði brot sitt skýlaust. Í dómi Héraðsdóms Reykjaness segir að í ljósi dómafordæma þykja ekki vera efni til að skilorðsbinda refsinguna. Frá refsingunni er dregin gæsluvarðhaldsvist sem maðurinn hefur sætt frá 14. september síðastliðnum.

Íranir fara eftir íslömsku tímatali og hjá íslamstrúarmönnum er árið 1388 núna. Hinn handtekni er því 28 ára gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×