Vilja banna nektarskanna 23. nóvember 2010 06:00 John Tyner „
Ef við megum ekki taka nektarmyndir af fólki, hvers vegna leyfum við þá stjórnvöldum að gera það?“ spurði bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Ron Paul, einn helsti talsmaður þeirra repúblikana sem hvað ákafast vilja draga úr umsvifum ríkisins. Hann vill banna nýjar aðferðir við öryggisgæslu á flugvöllum, sem felast í því að farþegar eru látnir ganga í gegnum nektarskanna áður en þeim er hleypt um borð í flugvél, eða sætta sig við að öryggisvörður þreifi vandlega á kynfærum þeirra ella. Miklar umræður hafa verið í Bandaríkjunum síðustu vikur um þessar nýju reglur. Upphafið má rekja til þess að John Tyner, ungur maður sem hugðist fara um borð í flugvél í San Diego, neitaði fyrr í mánuðinum að gangast undir skoðun með nektarskanna og hótaði að láta handtaka öryggisvörð ef hann snerti á kynfærum sínum. Tyner fékk ekki að fara um borð í flugvélina, en málið hefur nú verið tekið upp á þingi. John Pistole, yfirmaður samgönguöryggismála í Bandaríkjunum, var kallaður fyrir þingnefnd þar sem hann stóð fastur á því að þessar nýju öryggisráðstafanir væru nauðsynlegar. Hann sagði að ef fólk mætti velja um að ferðast með flugvél sem farþegum hefði verið hleypt inn í án þess að hafa gengist undir slíka skoðun eða vél með farþegum sem allir hefðu gengist undir slíkt myndi yfirgnæfandi meirihluti velja seinni vélina.- gb
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Sjá meira