Erlent

Leitað að kallinum í kassanum - 30 þúsund pund í boði

Tim Shaw hefur verið lokaður inni í kassa á stærð við fataskáp einhversstaðar á Bretlandi í rétt tæpan mánuð. Sá fyrsti sem finnur Tim fær 30 þúsund pund að launum en tíminn er að renna út. Tim ætlar að vera í kassanum í heilan mánuð og síðdegis á morgun rennur tíminn út.

Uppátækið hefur vakið gríðarlega athygli í Bretlandi og um sex milljónir manna hafa farið inn á heimasíðu þar sem hægt er að sjá hvernig gengur hjá Tim í kassanum.

Sjálfur veit hann ekkert hvar hann er staddur en eina vísbendingin er að staðurinn skipti miklu máli í lífi hans. Hann hefur því verið að segja áhorfendum frá lífi sínu í þeirri von að einhver ráði gátuna og finni hann.

Hér er hægt að kíkja á kallinn í kassanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×