Norður-Kóreumenn telja sig hafa verið í fullum rétti 24. nóvember 2010 04:00 Fylgst með sprengingum. Mikinn reyk lagði frá sprengingunum á Yeongpyeong-eyju í gær. Mynd/AP
Norður-Kóreumenn telja sig hafa verið í fullum rétti þegar þeir gerðu árás á eyjuna Yeonpyeong í gær meðan heræfingar stóðu þar yfir á vegum Suður-Kóreumanna. Samkvæmt frásögnum Suður-Kóreumanna skutu Norður-Kóreumenn tugum skota úr þungavopnum á Yeonpyeong-eyju og í hafið umhverfis eyjuna. Á eyjunni kviknaði í nærri 70 húsum, að minnsta kosti tveir suðurkóreskir hermenn létu lífið og átján manns særðust, þar af tveir hermenn alvarlega. Suður-Kóreumenn svöruðu í svipaðri mynt, með skothríð yfir til Norður-Kóreu, og saka Norður-Kóreumenn um að hafa, með því að gera árás á almenna borgara, brotið ákvæði í vopnahléssamningi ríkjanna frá 1953. Norður-Kórea hefur aldrei viðurkennt landhelgismörk ríkjanna í Gulahafi austur af Kóreuskaga. Markalínan, sem Sameinuðu þjóðirnar lýstu einhliða yfir árið 1953, liggur mun nær strönd Norður-Kóreu en Suður-Kóreu. Eyjan Yeongpyeong er rétt sunnan línunnar. Þar hefur her Suður-Kóreu haft aðstöðu auk þess sem lítil byggð almennra borgara er á eyjunni. Norður-Kóreumenn hafa hins vegar gert tilkall til hafsvæðis lengra til suðurs, að annarri markalínu sem er nær því að liggja mitt á milli ríkjanna, þótt Yeongpyeong og fleiri litlar eyjar í byggð myndu þá falla undir yfirráð Norður-Kóreu. Norður-Kóreumenn virðast líta á heræfingar Suður-Kóreumanna sem ögrun, eins þótt suður-kóreski herinn segist hafa gætt sín á því að skjóta til suðurs, í áttina frá Norður-Kóreu. Strangt til tekið féllu skotin í hafið á svæði sem Norður-Kóreumenn gera tilkall til. Mikil spenna hefur ríkt milli ríkjanna á þessu svæði áratugum saman, en Suður-Kóreumenn hafa jafnan lýst því yfir að þeir muni verja markalínuna og eyjarnar suður af henni af fullri hörku. Tvisvar áður hafa brotist út mannskæð átök við Yeongpyeong-eyju, fyrst árið 1999 og síðan árið 2002. Fleiri átök hafa orðið við markalínuna, síðast í mars á þessu ári þegar suðurkóresku herskipi var sökkt með tundurskeyti. Suður-Kóreumenn eru sannfærðir um að skotið hafi verið úr norður-kóreskum kafbáti, þótt Norður-Kóreumenn hafi neitað allri sök. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Sjá meira