Innlent

Aukið svigrúm til að grípa inn í samruna

Kæra Samkeppniseftirlitið taldi ekki ástæðu til að aðhafast vegna samruna Teymis og Vestia á síðasta ári. Síminn kærði þá niðurstöðu til Áfrýjunarnefndar um samkeppnismál, sem úrskurðaði að Samkeppniseftirlitið skuli setja skilyrði fyrir samrunanum.Fréttablaðið/Anton
Kæra Samkeppniseftirlitið taldi ekki ástæðu til að aðhafast vegna samruna Teymis og Vestia á síðasta ári. Síminn kærði þá niðurstöðu til Áfrýjunarnefndar um samkeppnismál, sem úrskurðaði að Samkeppniseftirlitið skuli setja skilyrði fyrir samrunanum.Fréttablaðið/Anton

Samkeppniseftirlitið hefur rýmri heimildir en áður var talið til að grípa inn í samruna, og þar með meiri möguleika til að taka á samkeppnislegum vandamálum sem tengjast eignarhaldi bankanna á fyrirtækjum.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu Samkeppniseftirlitsins vegna úrskurðar áfrýjunarnefndar um samkeppnismál vegna samruna Vestia og Teymis, sem fjallað var um í Fréttablaðinu í gær. Þar staðfestir nefndin samrunann, en leggur fyrir Samkeppniseftirlitið að setja honum ákveðin skilyrði. Eftirlitið mun í kjölfarið taka samrunann fyrir að nýju.

Það er mat áfrýjunarnefndarinnar að Samkeppniseftirlitið hafi heimildir til að setja skilyrði um að fyrirtæki séu yfirtekin af bönkunum, segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins. Þau skilyrði geti til að mynda verið að fyrirtæki verði seld innan tiltekins tíma, og að sjálfstæði þeirra verði tryggt.

Vestia er dótturfélag Landsbankans, sem stofnað var til að fara með eignarhald þeirra fyrirtækja sem bankinn þarf að taka yfir. Teymi á meðal annars símafyrirtækið Vodafone.

Niðurstaða áfrýjunarnefndarinnar eyðir óvissu um samkeppnislegt rekstrarumhverfi þeirra fyrirtækja sem Landsbankinn fer með í gegnum Vestia, segir í tilkynningu frá bankanum.

Þar segir að kappsmál sé fyrir bankann að reynt verði eftir föngum að koma í veg fyrir neikvæð áhrif af eignarhaldi banka á íslenskt atvinnulíf við þær sérstæðu kringumstæður sem nú ríki. Jafnframt verði að virða hagsmuni bankans af því að endurheimta lán til fyrirtækjanna.

Síminn kærði þá ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að aðhafast ekki vegna samruna Vestia og Teymis til áfrýjunarnefndarinnar.

Síminn krafðist þess að nefndin gripi til íhlutunar í samrunann, en til vara að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins yrði felld úr gildi og lagt fyrir eftirlitið að taka málið upp aftur. Áfrýjunarnefndin hafnaði aðalkröfunni, en féllst á varakröfuna.brjann@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×