Gerrard sér ekki eftir því að hafa hafnað Chelsea Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. nóvember 2010 11:30 Gerrard fagnar marki með Liverpool. Nordic Photos / Getty Images
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, sér alls ekki eftir því að hafa hafnað Chelsea á sínum tíma en þessi lið mætast í ensku úrvalsdeildinni í dag. Fyrir nokkrum árum íhugaði Gerrard alvarlega að fara frá Liverpool og taka tilboði Chelsea sem vildi fá hann. Chelsea er núverandi Englandsmeistari en Gerrard er enn að bíða eftir sínum fyrsta meistaratitli hjá Liverpool. „Ég held að það sé ekki rétt að segja að það hafi verið fórn af minni hálfu að vera áfram hjá Liverpool," sagði hann í samtali við enska fjölmiðla. „Það er ekki fórn að spila með Liverpool og vera fyrirliði liðsins - það heitir að fá að uppfylla drauminn." „Auðvitað hafa önnur félög komið til sögunnar í gegnum tíðina og ég hef fengið tækifæri til að fara annað - til Chelsea og annarra félaga. En ég elska þetta félag. Hér vil ég vera og ná árangri því ég veit að þegar sá dagur kemur þá mun ekkert jafnast á við það." Nýverið fékk Liverpool nýja eigendur - bandaríska eignarhaldsfélagið NESV með John Henry í forgrunni. „Það er rétt hjá Bandaríkjamönnum að vilja byggja til framtíðar en ég vil ná árangri strax þar sem ég á aðeins fjögur eða fimm ár eftir í þessum gæðaflokki. Ég vil vinna titla áður en ferlinum lýkur. Þess vegna fer ég í vinnuna á hverjum degi." „Síðustu tólf mánuðir hafa verið þeir erfiðustu síðan ég var átján ára gamall og vann mér sæti í aðalliðinu í fyrsta sinn." „Við urðum í sjöunda sæti deildarinnar á síðasta tímabilinu og það var mikið sem gekk á á vellinum. Vonandi er þessu öllu saman lokið og við getum leyft okkur að halda áfram."
Mest lesið Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Enski boltinn „Ég hélt að við værum komin lengra“ Enski boltinn „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun Fótbolti „Betra er seint en aldrei“ Enski boltinn Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Körfubolti Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Fótbolti Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Enski boltinn ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Handbolti Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Fótbolti Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld „Maður er búinn að vera á nálum“ Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Xhaka gerður að fyrirliða tveimur vikum eftir að hann var keyptur Enska augnablikið: Englar og djöflar Leoni færist nær Liverpool Tony Adams vill að Arsenal skipti um fyrirliða Rooney sár út í Tom Brady: „Fannst hann vera mjög ósanngjarn“ Chelsea gefur fjölskyldu Jota hluta af HM-bónusunum Nýja stórstjarna Liverpool fékk ekki að hafa sjónvarp heima hjá sér Enska augnablikið: AGUERO!! Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Calvert-Lewin á leið til Leeds Willum lagði upp sigurmark Birmingham Sjá meira