Þúsundir fögnuðu Aung San Suu Kyi Heimir Már Pétursson skrifar 14. nóvember 2010 12:12 Aung San Suu Kyi.
Aung San Suu Kyi leiðtogi Lýðræðisflokksins í Myanmar segist ætla að halda áfram að berjast fyrir mannréttindum og sátt meðal þjóðar sinnar. Þúsundir manna fögnuðu henni þegar hún kom í höfuðstöðvar flokksins í morgun. Aung San Suu Kyi átti í erfiðleikum með að komast inn í höfuðstöðvar Lýðræðisflokksins í morgun vegna gífurlegs mannfjölda sem beið hennar fyrir utan húsið. Aðstoðarmenn hennar áttu fullt í fangi með að koma henni í gegnum mannfjöldann sem kallaði stuðningsorð til hennar. Áður en hún ávarpaði stuðningsmenn sína í þröngum húsakynnum Lýðræðisflokksins, átti hún stuttan fund með sendimönnum erlendra ríkja. Í ávarpi sínu sagðist hún ætla að halda áfram baráttu sinni fyrir mannréttindum og virðingu fyrir lögum í landinu. Þá vildi hún stuðla að því að sættir tækjust í þjóðfélaginu og hún sagðist ekki bera kala til herforingjastjórnarinnar sem haldið hafa henni í stofufangelsi í fimmtán ár af síðustu tuttugu og eina ári. Suu Kyi þakkaði velunnurum sínum stuðninginn og hvatti fólk til að biðja fyrir þeim sem enn væru í haldi stjórnvalda. Enn á eftir að koma í ljós hvort Suu Kyi muni ögra herforingjastjórninni með fjöldafundum. En í þau fáu skipti sem hún hefur verið frjáls ferða sinna hefur mikill mannfjöldi safnast á útifundi hennar. Talsmaður hennar segir að hún muni styðja að rannsókn fari fram á kosningum sem fram fóru í Myanmar fyrir viku þar sem augljóst þykir að brögð hafi verið í tafli. Lýðræðisflokkur Suu Kyi fékk ekki að bjóða fram og flokkur hliðhollur herforingjastjórninni vann stórsigur. Ólíklegt er að herforingjunum takist að sætta almenning við kosningaúrslitin með því einu að gefa Suu Kyi frelsi. Hún mun ræða við fréttamenn síðar í dag.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Sjá meira